Gestir frá Íslandi árið 2005
14 október
16 ágúst 2005
Þorsteinn og Kata, komu hér í mat til okkar með Möggu og Preben - þau millilentu hér á leið í Evrópuferð í Campingbílnum sínum......... góða ferð, kanski sjáumst við á bakaleiðinni líka.........
13 ágúst 2005
Dóra systir mömmu og Skúli kíktu við á leið sinni hér á Fjóni - alltaf gaman að fá að sjá þau, þótt það hafi verið stutt í þetta sinn..........
12 ágúst 2005

Með Ósk komu Helga og Þórir (á myndinni er Helga með syni sínum Malla), en þau komu með börnin sín og litla barnabarnið með sér - það var mjög stutt heimsókn, en samt gaman að þau gáfu sér tíma til að kíkja líka.....

12 ágúst 2005
Ósk kom til að heimsækja son sinn í tilefni af afmæli hans og auðvitað kíkti hún í smá heimsókn til okkar á Rósó....
15 - 28 júlí 2005
Ingunn mætti á staðin eldhress....... en lenti í frekar leiðinlegu veðri - þetta var eini dagurinn sem hægt var að kalla sumarfíling-dag..........
14 - 16 júlí 2005

Árný, Gaui, Maggi og Ingileif komu aðeins við á þeirra ferð um Fjón og Jótland - Árný er vinkona mín og Ingileif er systir hennar - svo fengu karlarnir þeirra að fljóta með.........

25 júní 2005
Úlfar Már kom aðeins að heimsækja frænku sína - hann var hér til að fara á Roskilde festivalið og auðvitað gaf hann sér tíma til að heimsækja Axel frænda sinn og Möggu frænku.......
16 - 18 juní 2005
Magnús Ólafur með sína fjöldskyldu og þau höfðu Rósu frænku með...... Sindri hjálpaði Ella á barnum - mjög duglegur barþjónn..... Það var farið aðeins í bæinn - annars gerðum við lítið annað en hafa það rólegt..... TAKK FYRIR KOMUNA
29 april - 3 maj
Mamma og pabbi komu óvænt til okkar og voru yfir eina helgi - þeim langaði að vera eins og fína fólkið að fara helgarferðir....  Það var stutt en gott, eins og alltaf þegar þau láta sjá sig hér hjá okkur......... Komið endilega fljótt aftur
18 febrúar
Stína og Hildur komu aðeins við í mat hjá okkur - Chilli var mjög ánægð að hitta Hildi aftur.....